Klaviyo kerfið er mjög einfalt að samþætta við þekktari vefverslana kerfi eins og Shopify, Woocommerce og Bigcommerce. Innbyggð sjálfvirknivæðing hjálpar þér að eyða ekki dýrmætum tíma að óþörfu. Einnig er hægt að tengja kerfið við allar aðrar vefþjónustur í gegnum einfaldan API.
Að byggja upp viðskiptasambönd á netinu er ekkert öðruvísi en í raunheimum. Þú þarft að hlusta á viðskiptavini, greina og skilja hvað þeir eru að segja (beint eða óbeint), síðan framkvæma út frá þeirri innsýn—í rauntíma. Flestar hugbúnaðarlausnir flækja og lengja þetta ferli, og ná aldrei fullkomlega að uppfylla þarfir þínar. En með Klaviyo getur þú fengið hugmynd í morgunsárið og komið henni til skila eftir hádegi.
Klaviyo gerir þér kleift að byggja upp gagnadrifin tengsl við viðskiptavini. Þú getur samþætt þig við leiðandi vefverslana kerfi eins og Shopify, haldið uppi persónulegum samskiptum og haft aðgang að öllum upplýsingum á einum stað með auðveldri yfirsýn. Hafðu stjórn á þinni eigin markaðsetningu og skapaðu upplifun fyrir viðskiptavinina sem hæfir þínu fyrirtæki.
Sjálfvirkni Klaviyo hjálpar þér að nota tímann þinn frekar í að fá nýjar hugmyndir til að auka arðsemi og vöxt. Með Klaviyo getur þú sent sértæka sjálfvirka tölvupósta sem byggja á viðskiptasögu og virkni viðtakandans. Auk þess er mjög auðvelt að gera prófanir á mismunandi póstum til að sjá hvað leiðir til aukinnar sölu. Með flæðum (Flows) er hægt að halda samtalinu síðan áfram í þeim farveg sem er viðeigandi fyrir hvern og einn viðskiptavin.
Sendu á okkur línu og við hjálpum þér að finna bestu lausnirnar til þess að hámarka árangur þinn í sölu á netinu.