VIÐSKIPTAVINUR
Nespresso á Íslandi
SAMSTARFSAÐILAR
Nespresso HQ
Reon
Kosmos & Kaos
HELSTU VERKÞÆTTIR
* Stefnumótun við sölu og upplifun
* Hönnun og viðmót
* Viðmótsforritun
* Tenging við afgreiðslukerfi og Dynamics NAV
* Uppsetning á Nespresso klúbbnum
Nespresso á Íslandi leitaði til okkar til að setja upp vefverslun með upplifun að leiðarljósi.
Vefurinn var unninn í fjórum sprettum og var vefurinn fullmótaður á tæpum þremur mánuðum rétt fyrir opnun fyrstu verslunarinnar í Kringlunni.
Nespresso.is var tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna 2018.
Þetta er fyrsti vefurinn á heimsvísu út frá uppfærðu vörumerki Nespresso og einnig einn af fáum Nespresso vefjum í heiminum sem er 100% snjallsímavæddur.
Um ári eftir að vefurinn fór í loftið bættist við fyrirtækjavefur Nespresso Professional (B2B) með aukinni virkni sérsniðinni að þörfum fyrirtækja sem vilja versla á vefnum.
Hægt er að skoða vefverslun Nespresso á Íslandi
https://nespresso.is/
eða heimsækja fyrirtækjavef þeirra
https://nespresso.is/pages/professional.
Omnichannel var leiðarljós alls verkefnisins en nútíma viðskiptavinir vænta samþættingar í verslun og þjónustu hvort sem það er í gegnum snjallsíma, vefverslun eða hefðbundna búð.
Vefur Nespresso var uppfærður í Shopify Plus fljótlega eftir opnun þar sem sala gekk afar vel og óskir voru um aukna (sjálf)virkni á vefnum.